- Einföld leið til að taka á móti greiðslum í vefverslun.
- Innkaupakarfa seljanda er send yfir á Greiðslusíðu Borgunar þar sem korthafi framkvæmir greiðslu.
- Seljandi fær strax að vita hvort greiðsla hafi gengið í gegn.
Með þessari leið geymir seljandi engar kortaupplýsingar og ber því ekki ábyrgð á þeim.
Ferlið
Korthafi velur vörur eða þjónustu til kaups á vefverslun seljanda. Eftir að hafa gengið frá pöntun smellir hann á greiðsluhnapp sem flytur hann á Greiðslusíðu Borgunar. Þar birtast upplýsingar um seljandann og vöruna sem verið er að kaupa auk upphæðar. Kaupandinn slær inn kortnúmer, gildistíma, CVC öryggisnúmer (Verified by VISA eða MasterCard SecureCode) ef við á og í framhaldinu er sótt um heimild. Kaupandi og vefverslun fá svar við heimildabeiðninni.
- Hægt er að stilla Greiðslusíðu þannig að báðir fái pöntunarstaðfestingu í tölvupósti.
- Greiðslusíða býður upp á kaupendaskráningu á Greiðslusíðu, sem þýðir að ekki þarf að skrá sig sem kaupanda á eða í vefverslun.
- Einnig er mögulegt fyrir korthafa að skrá sig fyrir boðgreiðslum hjá seljanda, sé tenging seljanda forrituð þannig.