Hentar stærri seljendum sem vilja tengja öruggar greiðsluleiðir inn í sín kerfi.
Seljandi tekur á móti og geymir kortaupplýsingar á eigin vef og þarf því að uppfylla öryggisstaðla alþjóðlegu kortafélaganna, PCI-DSS (Payment Card Industry Security Standard).
Ferlið
Þegar Greiðslugátt Borgunar tengist vefverslun sér dulkóðuð vefþjónusta um samskiptin við Greiðslugáttina. Kaupandinn er á vefverslun seljanda á meðan kaup eiga sér stað. Vefverslun sendir kortaupplýsingarnar á Greiðslugáttina og móttekur svar við heimildabeiðni.
Greiðslugáttin býður einnig uppá mismunandi vefþjónustur sem henta ólíkum óskum seljanda, svo sem fyrir uppgjörsþjónustu, boðgreiðsluumsýslu og fyrirtækjagreiðslur.