3D Secure

3D Secure - er sameiginlegt heiti yfir MasterCard SecureCode og Verified by VISA öryggiskerfin en þau eru til þess gerð að tryggja bæði korthafa og seljendur fyrir kortasvikum. Með notkun 3D Secure er byggt á trausti milli korthafa og kortaútgefanda og því verða viðskiptin öruggari fyrir alla aðila. 

Korthafi sem hefur skráð sig í 3D Secure hjá sínum kortaútgefanda fær öryggisnúmer sem hann notar í vefviðskiptum hjá þeim netverslunum sem einnig eru skráðar í 3D Secure. 

Með því að vera með vefsíðu sína skráða í 3D Secure hefur seljandi tryggt sig fyrir misnotkun á MasterCard og Visa greiðslukortum og ábyrgð á sviksamlegum færslum færist af seljanda yfir til útgefanda kortsins.

Tenging við kerfin fylgir nú Greiðslusíðu Borgunar. Seljendur sem nota Greiðslugátt geta valið að tengjast við MasterCard SecureCode og Verified by VISA kerfin. Þetta þýðir að seljendur sem skráðir eru í 3D Secure bera ekki ábyrgð á sviksamlegum færslum svo framarlega sem þær hafi verið heimilaðar í gegnum 3D Secure kerfið. 

Það er til mikils að vinna, bæði fyrir seljendur og korthafa.  Seljandi er laus við ábyrgð á sviksamlegum færslum og korthafi lágmarkar áhættu á að hægt sé að misnota kortaupplýsingar hans á vefnum.


Til að tengjast 3D Secure þarf að gera eftirfarandi:

  • Nýjir seljendur - Haka við “Virkja Verified by Visa og MasterCard Secure Code öryggiskerfin” í umsókn um þjónustusamning vegna vefgreiðslna 
  • Núverandi vefseljendur - Hafa samband við Þjónustuver Borgunar og biðja um tengingu við 3D Secure