Kostir Seljandavefs

Seljandavefur Borgunar er þjónustuvefur fyrir seljendur þar sem auðvelt er að nálgast greinargóðar upplýsingar um greiðslukortaviðskipti. Vefurinn er einfaldur í notkun og sparar tíma við eftirlit og afstemmingar.

Seljandavefur Borgunar veitir forsvarsmönnum fyrirtækja afbragðs yfirsýn yfir uppgjör, viðskiptayfirlit og einstakar kortafærslur. Hægt er að fylgjast myndrænt með uppsöfnun færslna í næsta uppgjöri frá degi til dags og greina veltu eftir tegundum greiðslukorta. Listar innihalda ítarlegar upplýsingar sem auðvelda yfirsýn greiðslukortaviðskipta. Allar uppgjörsupplýsingar eru einnig aðgengilegar í PDF og Excel formi.

Seljandavefur

  • Sparar tíma við eftirlit og afstemningar
  • Góðar aðgangsstýringar
  • Færslur aðgengilegar allt að tvö ár aftur í tímann
  • Uppfyllir alþjóðlegar kröfur um geymslu kortaupplýsinga
Boðgreiðslur á Seljandavef

Auðvelt er að skrá boðgreiðslur beint á Seljandavef og velja sjálfvirka eða handvirka innsendingu eftir því sem hentar. Heimildarleit á sér stað við innsendingu. Greiðslukortaupplýsingarnar eru varðveittar í öruggum kerfum Borgunar.

Seljandavefur Borgunar hentar vel þeim sem innheimta sama gjald reglulega, t.d. fasteignagjöld, áskriftir og árgjöld. Þeir aðilar sem innheimta mismunandi upphæðir reglulega t.d. símreikninga, eða kjósa að vinna úr eigin viðskiptakerfum geta auk Seljandavefsins  nýtt sér Vefþjónustuskil Borgunar til innheimtu.

Aðgangur að Seljandavef

Til að fá aðgang að Seljandavef þarf forsvarsmaður fyrirtækis að senda inn umsókn til Borgunar. Nauðsynlegt er að þessi umsókn hafi borist undirrituð áður en aðgangur að vefnum er stofnaður. Hægt er að gefa notendum mismikinn aðgang að vefnum. Forsvarsmenn fyrirtækja geta fengið aðgang sem leyfir þeim að stofna aðganga á aðra starfsmenn fyrirtækisins.