Móttaka korta
Það er á ábyrgð seljanda að gæta að því að ákveðnir þættir séu í lagi þegar mótteknar eru kortagreiðslur.
Undirskrift korthafa
Þegar korthafi fær úthlutað korti afhendir hann rithandarsýnishorn sem geymt er hjá útgefanda og endurspeglar það undirskriftina aftan á korti korthafa. Mikilvægt er að seljendur athugi að undirskrift á nótu og á bakhlið korts sé sambærileg. Undirskrift korthafa er staðfesting á úttekt og er höfð til hliðsjónar komi upp athugasemd við hana.
Mynd á bakhlið korts
Á bakhlið nánast allra greiðslukorta er mynd af korthafa og ber seljendum að ganga úr skugga um að notandi kortsins sé sá sem myndin er af.
Gildistími korts
Framan á greiðslukortum kemur fram gildistími korta. Gildistími rennur út í lok þess mánaðar sem tilgreindur er. Í þeim tilfellum sem ekki er hægt að lesa kort í rafrænu afgreiðslutæki þá ber seljanda að gæta þess að kortið sé enn í gildi.
Hringt eftir heimild
Í sumum tilfellum þurfa seljendur að leita eftir heimild símleiðis hjá þjónustuveri. Þar þarf seljandi að gefa upp samningsnúmerið á þjónustusamningnum milli seljanda og Borgunar. Sé heimild veitt skráir seljandi heimildarnúmerið handvirkt.
Kortaöryggi
Ef að tilkynning birtist á skjá afgreiðslutækis um að taka eigi kortið af korthafa þá ber afgreiðslufólki skylda til þess. Ef það gengur ekki eftir þá ber að tilkynna það strax til þjónustvers Borgunar.
Kortatímabil
Seljendur þurfa að geta veitt viðskiptavinum sínum upplýsingar um hvort að þeir bjóði upp á almennt eða breytilegt kortatímabil.
Lánaviðskipti
Þeir seljendur sem vilja bjóða greiðsludreifing á vörukaupum geta sótt um Lánavef. Á Lánavefnum geta seljendur afgreitt Staðgreiðslulán vegna MasterCard og Visa kreditkorta. Af Lánavefnum sendist samningurinn rafrænt til okkar.
Kort ekki til staðar
Þegar að verslað er símleiðis eða í gegnum vefverslun þá þarf seljandi eftir að hafa fengið almennar kortaupplýsingar að fá uppgefið CVC númer kortsins sem staðsett er á bakhlið þess. Þetta er gert til að sannreyna að kaupandinn sé með kortið í höndunum. Auk þess þá þarf seljandi að hringja eftir heimild vegna úttektar, sé ekki um sjálfvirkan búnað að ræða líkt og hjá flestum vefverslunum.