Sækja um starf

Sérfræðingur í endurkröfum

Endurkröfur annast úrlausn fyrirspurna og endurkrafna fyrir útgefendur, korthafa og seljendur vöru og þjónustu, ásamt vöktun svikamála.

Helstu verkefni:
- Fyrirspurnir og endurkröfur vegna greiðslukorta
- Samskipti við viðskiptavini
- Vöktun svikamála
- Eftirfylgni við úrlausn mála
- Frágangur skjala
- Önnur tilfallandi verkefni

Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun og reynsla af greiðslumiðlun er kostur
- Mjög góð enskukunnátta
- Greiningarhæfni og áhugi á viðfangsefninu
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
 
Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Rut Þráinsdóttir starfsmannastjóri (art@borgun.is) í síma 560 1579.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september næstkomandi.
 
Þjónustufulltrúi í þjónustuveri

Við leitum að jákvæðum, lífsglöðum og reglusömum einstaklingi. Vinnutími er milli kl. 9.00 og 17.00.

Helstu verkefni:
- Svörun fyrirspurna í síma
- Þjónusta og ráðgjöf við fyrirtæki og útgefendur
- Almenn samskipti og úrlausn mála fyrir viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni

Menntun og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf er skilyrði
- Reynsla af þjónustustörfum
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Góð enskukunnátta
- Ábyrgð og áreiðanleiki
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
 
Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Rut Þráinsdóttir starfsmannastjóri (art@borgun.is) í síma 560 1579.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september næstkomandi.
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi