Vefgreiðslur

Borgun býður seljendum tvær leiðir til móttöku vefgreiðslna, Greiðslusíðu og Greiðslugátt.

Veflausnir Borgunar uppfylla ströngustu öryggiskröfur. Þær eru skannaðar af Trustwave, sem er stærsti og virtasti PCI DSS ráðgjafi heims. 


Greiðslusíða

  • Einföld leið til að taka á móti greiðslum í vefverslun.
  • Innkaupakarfa seljanda er send yfir á Greiðslusíðu Borgunar sem sér um greiðsluna.
  • Seljandi fær strax að vita hvort greiðsla hafi gengið í gegn.

Korthafi velur vörur eða þjónustu til kaups á vefverslun seljanda. Eftir að hafa gengið frá pöntun smellir hann á greiðsluhnapp sem flytur hann á Greiðslusíðu Borgunar. Þar birtast upplýsingar um seljandann og vöruna sem verið er að kaupa. Kaupandinn slær inn kortnúmer, gildistíma, öryggisnúmer og í framhaldinu er sótt um heimild. Kaupandi og vefverslun fá svar við heimildabeiðninni. Með því að smella á hnapp á Greiðslusíðunni er kaupandinn fluttur aftur á vefverslunina þar sem viðskiptin eru staðfest.


Greiðslugátt

  • Hentar stærri seljendum sem vilja tengja öruggar greiðsluleiðir inn í sín kerfi.
  • Í boði eru fjölþættar vefþjónustur sem seljandi getur valið úr eftir sínum þörfum.

Þegar vefverslun tengist Greiðslugátt Borgunar sér dulkóðuð vefþjónusta um samskiptin við Greiðslugáttina. Kaupandinn er á vefverslun seljanda á meðan kaup eiga sér stað. Vefverslun sendir kortaupplýsingarnar á Greiðslugáttina og móttekur svar við heimildabeiðni. Seljandi þarf að uppfylla öryggiskröfur um meðferð og geymslu kortaupplýsinga og framkvæma þarf sérstaka úttekt á síðunni áður en Greiðslugáttin er virkjuð.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi