MasterCard SecureCode

MasterCard mun árið 2010 innleiða MasterCard SecureCode - aukið öryggi til netverslunar fyrir íslenska MasterCard korthafa.

MasterCard SecureCode
MasterCard SecureCode gerir MasterCard korthöfum kleift að eiga öruggari viðskipti við þúsundir verslana á vefnum.

Af hverju MasterCard SecureCode?
Þegar MasterCard korthafar skrá sitt SecureCode lykilorð þá auka þeir öryggi sitt við verslun á netinu til muna. Þetta verndar korthafa gegn misnotkun á kortinu þegar verslað er hjá seljendum sem styðja MasterCard SecureCode.

Auðvelt er fyrir MasterCard korthafa að nýta sér þjónustuna - ekki er þörf á að endurnýja kortið, ekki þarf að hala niður hugbúnaði á vefnum og engin aukakostnaður fylgir notkuninni… aðeins aukið öryggi!

Notkun MasterCard SecureCode
Þegar korthafi verslar með MasterCard greiðslukortinu sínu í netverslun sem styður við SecureCode þjónustuna:

  1. Korthafi samþykkir pöntun á vöru og/eða þjónustu sem versla á líkt og áður.
  2. SecureCode gluggi opnast sjálfvirkt og korthafi er beðinn um að stimpla inn SecureCode lykilorðið sitt. Ef korthafi hefur ekki SecureCode lykilorð þá hefst skráning á þessum tímapunkti.
  3. Innan fárra sekúndna þá er réttur notandi staðfestur og kaupin ganga í gegn. Þessi samskipti eru aðeins á milli korthafans og útgefanda kortsins og aðeins aðgengileg þeim.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi