Frétt
Discover Iceland
Borgun, American Express og Icelandair hófu í fyrra sameiginlegt markaðsátak „Discover Iceland“ með það að markmiði að fjölga erlendum ferðamönnum á Íslandi.
Með átakinu, sem þegar hefur skilað umtalsverðum árangri, er athygli American Express korthafa vakin á sérstöðu íslenskrar náttúru og þeim fjölmörgu möguleikum sem ferðaþjónustan hefur uppá að bjóða. Kynnt eru tilboð á flugferðum og gistimöguleikum auk afslátta hjá bílaleigum, verslunum og veitingastöðum víðs vegar um landið. Ríflega helmingur af veltu American Express greiðslukorta hér á landi er tilkominn vegna notkunar ferðamanna og sýnir reynslan að stór hluti þeirra leitar til fyrirtækja sem taka á móti American Express greiðslukortum.
Hafðu samband við fyrirtækjaþjónustu okkar í síma 560 1600 eða á fyrirtaeki@borgun.is til að kynna þér betur Discover Iceland.