Umsókn um Seljandavef
Fylltu út formið hér fyrir neðan, prentaðu út og sendu undirritað eintak til Borgunar á fax 568 0620, á borgun@borgun.is eða póstsendið á Borgun hf, Ármúla 30, 108 Reykjavík
Umsókn um aðgang að Seljandavef Borgunar hf
| Nafn seljanda, eigendafélags: | |
| Kennitala seljanda: | |
| Nafn notanda: | |
| Kennitala notanda: | |
| Netfang notanda: | |
| Seljandanúmer eða kennitala fyrirtækis sem notandi skal hafa aðgang að: |
| Aðgangur að færsluupplýsingum: | |||
| Réttindi til að stofna aðganga: | |||
Skilmálar v/aðgangs að Seljandavef Borgunar
- Borgun lætur seljanda í té notendanafn og aðgangsorð (leyniorð) að seljendahluta netsíðu Borgunar. Seljanda getur notað aðgang sinn til að stofna aðgang fyrir þá starfsmenn er hann óskar eftir að fái aðgengi að vef. Aðgangur sem stofnaður er af seljanda er alfarið á hans ábyrgð.
- Allar upplýsingar um seljendauppgjör á netsíðu Borgunar eru vistaðar á öruggu vefsvæði, vottuðu af Verisign.
- Seljandi ber fulla ábyrgð á meðferð og notkun allra notendanafna og aðgangsorða er honum hefur verið úthlutað. Seljandi ber fulla ábyrgð á öllum aðgerðum þeirra starfsmanna sinna er hlotið hafa aðgengi. Seljanda ber að tilkynna Borgun þegar í stað ef starfsmaður hans er hefur aðgang að netsíðunni hættir störfum hjá seljanda. Sama gildir ef seljandi ákveður að hætta að heimila starfsmanni aðgang.
- Til að koma í veg fyrir misnotkun skal seljandi tryggja að enginn óviðkomandi komist í upplýsingar um aðgangsorð er honum hafa verið úthlutuð. Notandi skal skipta um aðgangsorð ef minnsti grunur er um að óviðkomandi aðili hafi komist yfir upplýsingar um það. Borgun áskilur sér rétt til að fara fram á að seljandi skipti um aðgangsorð með því að senda seljanda boð þar um. Borgun ber ekki ábyrgð á misnotkun ef óviðkomandi aðili þekkir aðgangsorðið. Eingöngu er hægt að breyta aðgangsorði á netsíðunni eða hjá Borgun.
- Seljanda er heimill aðgangur að netsíðu Borgunar á Veraldarvefnum í samræmi við þjónustustig þar um á hverjum tíma.
- Borgun er ekki ábyrgt fyrir því tjóni sem getur orsakast beint eða óbeint, vegna bilunar í tölvubúnaði og/eða hugbúnaði Borgunar eða seljanda, vegna lokunar tímabundið eða af öðrum þeim orsökum sem kunna að valda því að seljandi geti ekki notað netsíðuna.
- Borgun áskilur sér rétt til að loka netsíðunni tímabundið ef þörf krefur.
- Verði um misnotkun, eða tilraun til misnotkunar, að ræða af hálfu seljanda áskilur Borgun sér rétt til að útiloka viðkomandi frá frekari notkun.
- Borgun áskilur sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum. Sé Borgun ekki tilkynnt um uppsögn innan 14 daga frá tilkynningu um breytta skilmála, skoðast breytingin samþykkt af seljanda.
Undirskrift og samþykki við skilmálum*
Staður og dagsetning