Pinnið á minnið

Öruggari kortaviðskipti og verndun kortaupplýsinga

 

 

Á árinu 2011 fara korthafar að staðfesta greiðslur með pinni í stað undirskriftar, líkt og víða erlendis. Seljendur þurfa að setja upp örgjörvaposa sem snýr að viðskiptavinum. Starfsfólk biður um staðfestingu með pinni í stað undirskriftar og þarf ekki lengur að bera saman undirskrift á korti og kvittun. Korthafar þurfa að vera með örgjörvakort og leggja pinnið á minnið.

Íslensk kreditkort eru þegar með örgjörva og útgáfa debetkorta með örgjörva er í fullum gangi.

Hvað gera fyrirtæki með sjálfstæðan posa?
Borgun á tilbúnar lausnir fyrir seljendur sína og finna þarf hentuga staðsetningu fyrir örgjörvaposa sem snýr að viðskiptavininum, hvort sem hentar betur að setja upp tvo samtengda posa eða einn posa sem má snúa í báðar áttir. Þeir seljendur sem nú þegar eru með posa í leigu hjá okkur þurfa annað hvort að fá uppfærslu á hugbúnaði posans eða að skipta yfir í örgjörvaposa. Posadeild Borgunar vinnur eftir dreifingaráætlun og ætlar að skipta öllum posum út fyrir örgjörvaposa á árinu. Sendu póst á posi@borgun.is til að fá nánari upplýsingar.

Hvað gera fyrirtæki með afgreiðslukerfi?
Þjónustuaðilar afgreiðslukerfa eiga tilbúnar tengingar á milli kassa og örgjörvaposa. Finna þarf hentuga staðsetningu fyrir örgjörvaposa eða örgjörvalesara sem snýr að viðskiptavininum. Flestum dugar einn örgjörvaposi fyrir hvern kassa. Huga þarf að netlögn fyrir posann.

Upplýsingar um þjónustuaðila greiðslulausna og kassakerfa