Viðskiptavinir Borgunar geta tekið við öllum helstu greiðslukortum og verða því ekki af viðskiptum. Við byggjum á reynslu og þekkingu á þörfum viðskiptavina okkar og leggjum áherslu á sveigjanleika og breidd í þjónustu. Með því að vera með allt á einum stað færð þú eitt uppgjör yfir alla kortaveltu sem veitir betri yfirsýn.
Borgun ábyrgist að skuldfæra korthafa fyrir færslunni og gera hana upp við fyrirtæki á uppgjörsdegi.
Helstu kortategundir: MasterCard, Maestro, VISA, VISA Electron, Union Pay, JCB, Diners Club, Discover Card og American Express.
Allir sem óska eftir að geta tekið við greiðslukortum þurfa að hafa þjónustusamning.
Búnaður
Ákveða þarf hvernig búnaður hentar fyrirtækinu best; posi, afgreiðslukerfi eða þrykkivél. Við vekjum sérstaka athygli á því að Borgun er hagstæðast í posum.
Ferlið
Það tekur 2-3 virka daga að afgreiða þjónustusamning. Þegar umsókn hefur verið samþykkt er þjónustusamningurinn sendur í pósti til umsækjanda. Forsvarsmaður fyrirtækis/tengiliður undirritar samninginn og sendir frumrit hans til Borgunar. Fyrirtækið skal halda eftir afritinu.
Hægt er að nota samningsnúmer fyrirtækis strax og samningur hefur verið stofnaður, en greiðslum fyrir kreditkort er haldið eftir, þar til frumrit samnings hefur borist Borgun undirritað.
Hafðu samband við fyrirtækjaþjónustu Borgunar í síma 560 1600 eða sendu póst á fyrirtaeki@borgun.is til að fá frekari upplýsingar.