Boðgreiðslur

Boðgreiðslur eru tilvalin leið til að innheimta rafrænt mánaðarlegar greiðslur af MasterCard, VISA og American Express greiðslukortum, svo sem fasteignagjöld, hita- og rafmagnsreikninga, tryggingar, símreikninga, leikskólagjöld og ýmsar áskriftir.

Seljendur spara sér mikla fyrirhöfn með boðgreiðslum, njóta meiri skilvísi og halda kostnaði við innheimtu í lágmarki.

Hvernig skrái ég boðgreiðslur?

Seljandavefur

Á Seljandavef Borgunar er hægt að skrá boðgreiðslur í einföldu og þægilegu viðmóti og heimildarleit fer fram jafnóðum. Greiðslurnar sendast sjálfkrafa inn og kortaupplýsingar eru varðveittar í öruggum kerfum Borgunar.

Vefþjónustuskil

Með vefþjónustuskilum er seljanda gert kleift að innheimta regluleg gjöld beint úr eigin kerfi. Kortaupplýsingar eru geymdar hjá seljanda og er hann ábyrgur fyrir öryggi þeirra. Seljandi á þess kost að skipta kortanúmerum út fyrir svokölluð sýndarnúmer eða að fá úttekt og vottun Greiðsluveitunnar á öryggi gagnageymslu sinnar. Notkun vefþjónustuskila krefst þess að forrituð sé tenging úr viðskiptakerfi seljanda í vefþjónustur Borgunar.

Sýndarnúmer

Mælt er með að seljendur sem geyma kortaupplýsingar í eigin kerfum skipti kortnúmerum út fyrir sýndarnúmer. Með þessu móti dregur seljandi verulega úr hættu á misnotkun kortaupplýsinga ásamt því að uppfylla PCI öryggisstaðalinn. Þessi þjónusta er í boði fyrir seljendur hvort sem þeir nota Seljandavef eða vefþjónustur Borgunar.