Borgun annast greiðslumiðlun fyrir viðskiptavini sína og býður alhliða tæknilausnir. Starfsfólk Borgunar hefur víðtæka þekkingu á þeim hagnýtu lausnum sem Borgun býður og leggur áherslu á lipra og persónulega þjónustu. Með Borgun tekur þú við öllum helstu greiðslukortum og verður því ekki af viðskiptum.
Borgun hefur vandaða posa til leigu á góðum kjörum. Posarnir mæta öllum kröfum um móttöku greiðslukorta og eru einfaldir í notkun, auk þess er hægt að fá ýmsar sérlausnir í þá. Borgun sér um uppsetningu og viðhald á búnaði. Frí uppsetning á höfuðborgarsvæðinu.
Borgun auðveldar viðskiptavinum sínum að bjóða korthöfum greiðsludreifingu til allt að 36 mánuði á hagstæðum kjörum. Á Lánavef Borgunar geta viðskiptavinir okkar afgreitt Staðgreiðslulán samstundis.
Borgun býður seljendurm tvær leiðir til móttöku vefgreiðslna, Greiðslusíðu og Greiðslugátt. Vefgreiðslur Borgunar uppfylla ströngustu öryggiskröfur. Þær eru skannaðar af Trustware, sem er stærsti og virtasti PCI-DSS ráðgjafi heims.
Borgun auðveldar viðskipti og hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í yfir 30 ár. Þekking okkar og reynsla nýtist viðskiptavinum okkar á hverjum degi, allan ársins hring.