Staðgreiðslulán

Staðgreiðslulán Borgunar er einföld leið fyrir seljendur til að bjóða viðskiptavinum sínum að dreifa greiðslum vegna stærri innkaupa í allt að 36 mánuði.  MasterCard og Visa korthafar eiga kost á að nýta sér þessa greiðsluleið að því gefnu að korthafi standist lánaramma og lánshæfismat Borgunar, þó aldrei hærra en 650.000 kr.  Seljendur geta boðið upp á lán með eða án vaxta,  Borgun sér um innheimtu og ber ábyrgð á lánasamningnum.

Kjör:

Staðgreiðslulán:  Korthafar greiða 3,5% lántökugjald, almenna vexti* og uppgjörsgjald*.
Borgun kaupir samninginn og innheimtir.  Söluaðili fær greitt andvirði vörunnar.

Staðgreiðslulán án vaxta:  Korthafar greiða 3,5% lántökugjald og uppgjörsgjald*. Söluaðilinn ber kostnað vegna vaxta*.  Borgun kaupir samninginn og innheimtir. Söluaðili fær greitt andvirði vörunnar að frádregnum vöxtum.*

Uppgjör:

Seljandinn fær greiddan höfuðstól  (að frádregnum vöxtum* ef Vaxtalaust Staðgreiðslulán) samningsins annan virka dag eftir að kaupin fóru fram og jafngildir því staðgreiðslu.

Viðskiptayfirlit vegna keyptra lánasamninga er sent í pósti til seljanda.

*skv. gjaldskrá Borgunar

Kostir Staðgreiðslulána Borgunar

•    Einfalt og öruggt
•    Engin þjónustugjöld
•    Uppgjör á öðrum degi
•    Borgun sér um innheimtu
•    Borgun ábyrgist lánið til korthafa