Upphaf greiðslukorta á Íslandi

Árið 1980 var fyrsta greiðslukortafyrirtækið á Íslandi, EUROCARD á Íslandi - Kreditkort hf., stofnað.

EUROCARD á Íslandi verður EUROPAY Ísland árið 1998, til samræmis við þróunina í Evrópu. Markmiðið var að færa áhersluna frá vörumerkinu EUROCARD, enda fleiri vörumerki í boði, Maestro og MasterCard.

Árið 2003 verða breyttar áherslur; EUROPAY Ísland verður MasterCard - Kreditkort hf. EUROCARD merkið hverfur smám saman af kortum og áherslan verður á MasterCard, eitt þekktasta vörumerki veraldar.

 

Aðgreining kortaútgáfu og færsluhirðingar

Árið 2007 var ákveðið að aðgreina útgáfu korta félagsins frá annarri starfsemi með því að skipta rekstrinum í tvö félög. Færsluhirðingarhlutinn fékk nafnið Borgun. Færsluhirðingarhlutinn fékk nafnið Borgun og útgáfuhlutinn hélt nafninu Kreditkort, þau eru rekin sem tvö sjálfstæð fyrirtæki í dag.

Útgáfuþjónustu Borgunar hætti útgáfu MasterCard korta við aðgreininguna árið 2007 en hélt áfram þjónustu við kortaútgáfu við eftirfarandi banka og sparisjóði, Arion banka, BYR, Íslandsbanka, Kreditkort, Landsbankann, S24 og Sparisjóðinn.

Árið 2008 hefur Borgun færsluhirðingu á American Express kortum. Á sama tíma hóf Kreditkort útgáfu fyrstu íslensku American Express korta  á Íslandi.

Í byrjun árs 2009 bættist færsluhirðing á VISA og VISA Electron í hópinn og varð Borgun þar með eini færsluhirðir landsins sem býður heildarlausn í færsluhirðingu. Á sama tíma býðst seljendum daglegt uppgjör. 

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi