Viðskiptaskilmálar
1.0 Aðild og efni skilmálanna
1.1 Skilmálar þessir gilda í samskiptum Borgunar hf., hér eftir nefnt félagið, og fyrirtækja sem hafa heimild til að taka við greiðslum með MasterCard, Maestro, VISA, VISA Electron, JCB, Diners Club og American Express, hér eftir seljandi.1.2 Skilmálarnir hafa og að geyma reglur um samskipti félagsins, seljanda og handhafa MasterCard, VISA, Diners Club og American Express kreditkorta og Maestro og VISA Electron debetkorta.
1.3 Skilmálarnir, eins og þeir eru á hverjum tíma, eru hluti þjónustusamnings félagsins og seljanda. Í þjónustusamningi er nánar tilgreint hvaða kortum seljandi hyggst taka við. Seljandi getur síðar ákveðið að taka við fleiri kortategundum, m.a. með því að stilla fram einkennismerkjum viðkomandi korts. Skal það, ásamt viðtöku hans á viðkomandi kortum og innsending færsla í kortakerfi félagsins vegna þeirra, vera samþykki seljanda á þeim kjörum og skilmálum sem um þau gilda á hverjum tíma. Seljanda er alltaf tæknilega mögulegt að taka við öllum þeim kortum sem skilmálar þessir fjalla um, óski seljandi þess er lokað fyrir móttöku einstakra kortategunda.
1.4 Sá hluti samnings er kveður á um heimild seljanda til að taka á móti American Express kortum er ætíð framseljanlegur til American Express eða þess er starfar í umboði American Express. Komi til framsals mun seljanda kynnt um það með a.m.k. 30 daga fyrirvara.
1.5 Útgefendur korta eru fjármálastofnanir, svo sem kortafyrirtæki, bankar og sparsjóðir um allan heim.
1.6 Þegar í skilmálum þessum er fjallað um rétt félagsins til endurgreiðslu greiddra úttekta og rétt félagsins til að hafna greiðslu úttekta með kortum, vegna mótmæla korthafa, eða vegna þess að greiðslur hafa ekki borist frá korthafa, er jöfnum höndum vísað til réttar félagsins sjálfs og útgefenda korta.
1.7. Félagið kannar lánshæfi umsækjanda um þjónustusamning, auk þess áskilur það sér rétt til að kanna í upphafi viðskipta sem og á gildistíma samnings starfsstöð seljanda svo félagið geti fullvissað sig um að upplýsingar um starfssemi seljanda séu réttar. Í tengslum við slíka könnun getur félagið kallað eftir upplýsingum um afgreiðslukerfi, birgðahald og starfsleyfi ef um leyfisskylda starfssemi er að ræða.
1.8. Félaginu er hvenær sem er á samningstímanum heimilt að kalla eftir endurskoðuðum ársreikningum seljanda og ber seljanda skylda til að verða við slíkri ósk innan 10 daga.
1.9. Seljanda er skylt að upplýsa félagið um breytingar á rekstrarformi og/eða starfssemi seljanda. Seljandi getur tilkynnt slíkar breytingar með útfyllingu eyðublaðs á www.borgun.is. Óski seljandi að breyta ráðstöfunarreikningi uppgjörs skal skila félaginu skriflegri beiðni þess efnis undirritaðri af skráðum prókúruhafa seljanda.
2.0 Trúnaðarskyldur og upplýsingaöryggi
2.1 Félagið er eitt eigandi allra gagna og upplýsinga sem í færslukerfi þess eru og/eða eiga uppruna sinn í segulrönd/örgjörva korta. Hagnýting áður nefndra gagna takmarkast þó við notkun sem beint eða óbeint er í þágu seljanda.2.2 Seljandi skuldbindur sig til að gæta fyllsta trúnaðar gagnvart korthafa vegna viðskipta þeirra á milli.
2.3 Seljanda er óheimilt að upplýsa þriðja aðila um efni viðskipta og honum ber skylda til að koma í veg fyrir að upplýsingar um nafn korthafa, kortanúmer og aðrar segulrandarupplýsingar komist í hendur óviðkomandi aðila. Honum ber að fylgja reglum Fjölgreiðslumiðlunar hf. og kortasamsteypanna um meðferð og vörslu kortaupplýsinga á rafrænu formi. Seljandi skal veita félaginu, vottunar- og úttektaraðilum félagsins, nú Fjölgreiðslumiðlun og/eða fulltrúum kortasamsteypanna aðgang að búnaði sínum og kerfum. Seljandi skal á hverjum tíma uppfylla skilyrði staðals fyrir gagnaöryggi hjá greiðslukortafyrirtækjum svokallaðan PCI-DSS (Payment Card Industry – Data Security Standard) staðal.
2.4 Félaginu er óheimilt að upplýsa þriðja aðila um efni viðskipta korthafa og seljanda og ber skylda til að koma í veg fyrir að upplýsingar um viðskipti seljanda komist í hendur óviðkomandi aðila. Félaginu er þó ætíð heimilt að gefa MasterCard Worldwide, Maestro International, American Express, Diners Club, JCB og VISA International upplýsingar um einstakar færslur og/eða heildarveltu á viðkomandi korti/kortum hjá seljanda. Upplýsingar má láta í té vegna rannsóknar opinberra mála sé þeirra krafist eða skylt sé að láta upplýsingarnar af hendi lögum samkvæmt.
2.5. Seljanda ber skylda til að afhenda félaginu afrit einstakra viðskiptareikninga vegna þeirra viðskipta er standa að baki úttekt korthafa, óski félagið þess.
2.6. Vanræki seljandi að uppfylla skilmála þessa svo varði tjóni fyrir Borgun og/eða þriðja aðila getur slík vanræksla valdið bótaskyldu.
3.0 Skylda til móttöku korta
3.1 Seljandi skuldbindur sig til taka við greiðslum með kortum, sem fullnaðargreiðslu fyrir allar vörur og þjónustu sem seljandi veitir almennum viðskiptamönnum sínum. Seljanda er þó aldrei heimilt að taka við korti sem greiðslu fyrir fjárhættuspil, klám, vændi, eiturlyf eða sem greiðslu fyrir ólöglega vöru eða þjónustu.3.2 Seljanda er óheimilt að nota seljandasamning til að taka við greiðslum vegna viðskipta korthafa hjá öðrum en honum sjálfum.
3.3 Seljanda er óheimilt að afhenda peninga á móti kortafærslu með kreditkorti.
3.4 Seljanda er heimilt að skrá hærri fjárhæðir en sem nemur viðskiptum með debetkorti og gefa korthafa til baka í reiðufé.
4.0 Framvísun korts - skyldur seljanda
4.1 Þegar framvísað er korti sem búið er örgjörva er mikilvægt að örgjörvi sé lesinn í stað segulrandar. Þegar örgjörvi er lesinn staðfestir korthafi úttekt með innslætti svokallaðs PIN númer í stað undirskriftar slippa.
4.2 Ef ekki er mögulegt að lesa örgjörva skal seljandi við sérhverja greiðslu með korti þar sem lesin er segulrönd sannreyna öll sérstök einkenni viðkomandi korts sem og gæta hinna almennu öryggisatriða. Seljandi skal ekki afhenda korthafa kortið fyrr en að könnun lokinni.
Sérstök einkenni MasterCard korta:
• Heilmynd ("hólógrafískt" tákn), sem breytist sé því velt á móti ljósi.
• 16 tölustafa kortanúmer.
• Fyrstu 4 stafir kortanúmers eru forprentaðir á kortið.
Sérstök einkenni JCB korta:
• Heilmynd ("hólógrafískt" tákn) á framhlið eða bakhlið, sem breytist sé því velt á móti ljósi.
• 16 tölustafa kortanúmer sem getur verið hvort heldur sem er áþrykkt eða prentað á framhlið kortsins.
• Fyrstu 4-6 stafir kortanúmers eru forprentaðir á framhlið kortsins.
Sérstök einkenni Diners Club korta:
• Heilmynd ("hólógrafískt" tákn), sem breytist sé því velt á móti ljósi.
• 14 tölustafa kortanúmer.
Sérstök einkenni American Express korta:
• Heilmynd í segulrönd aftan á kortinu („hólógrafískt „tákn), sem breytist sé því velt á móti ljósi.
• 15 tölustafa kortanúmer.
• 4 tölustafir eru forprentaðir framan á kortið, hægra megin.
Sérstök einkenni VISA korta:
• Heilmynd ("hólógrafískt" tákn), sem breytist sé því velt á móti ljósi.
• 16 tölustafa kortanúmer.
• Fyrstu 4 stafir kortanúmers eru forprentaðir á kortið.
Almenn öryggisatriði er seljanda ber ætíð að kanna:
• Að myndin á kortinu sé af þeim sem framvísar því, ef mynd er til staðar.
• Að rithöndin á úttektarseðlinum sé sú sama og á bakhlið kortsins.
• Að kortið beri ekki merki um að á því hafi verið gerðar breytingar.
• Að krefjast fullgildra persónuskilríkja ef nokkur vafi leikur á því að sá sem framvísar kortinu sé rétti korthafinn.
• Að gildistími kortsins sé ekki útrunninn.
4.3. Þegar korti er ekki framvísað eða úttekt ekki staðfest með PIN númeri færist ábyrgð úttektar ekki yfir á félagið þegar heimild er fengin. Með útgáfu heimildarnúmers í slíkum viðskiptum er einungis verið að staðfesta að kort sé opið.
Seljandi skal við sérhverja greiðslu þar sem korti er ekki framvísað ganga úr skugga um að:
• Gildistími kortsins sé ekki útrunninn.
• Á kreditkorti sé réttur fjöldi tölustafa í kortnúmeri sbr. 4.2.
• Leitað sé heimildar rafrænt eða hjá þjónustuveri félagsins s: 560 1600.
Sérstakt öryggisnúmer er prentað á undirskriftarlínu á bakhlið MasterCard Diners Club og VISA korta, þ.e. 7 stafa númer og seinustu 3 stafirnir eru sérstakt öryggisnúmer kortsins. Sérstak 4 stafa öryggisnúmer er prentað á framhlið American Express korta. Í netviðskiptum biður seljandi um þetta öryggisnúmer þegar korthafi gefur upp American Express, MasterCard, Diners Club eða VISA kortnúmer. Rétt númer er staðfesting þess að viðskiptamaðurinn sé með kortið í höndunum. Öryggisnúmerið má ekki undir nokkrum kringumstæðum vista né geyma á skriflegu formi. Tilgreina skal á sölunótu um hvers konar viðskipti er að ræða. Um varðveislu sölunótna gilda reglur 8.16. Það fellur í hlut seljanda að færa sönnur fyrir því að korthafi hafi samþykkt færslu sem gerð er án þess að korti sé framvísað.
4.4. Vanræksla á einu eða fleiri fyrrgreindra atriða veitir félaginu rétt til að hafna greiðslu úttektar, eða, hafi félagið greitt úttekt, að endurkrefja seljanda um fjárhæðina, ef korthafi innir ekki greiðslu af hendi til félagsins.
4.5. Seljandi skal í einu og öllu fara eftir þeim leiðbeiningum sem koma fram á skjá eða afgreiðsluseðli.
4.6. Seljanda er skilyrðislaust skylt að gera kort upptækt og klippa það sundur í neðangreindum tilvikum:
• Komi fram skilaboð á skjá eða afgreiðsluseðli, þegar heimildar er leitað með rafrænum hætti, um að taka kort af korthafa.
• Ef tilmæli berast um slíkt, þegar heimildar er leitað símleiðis.
• Ef kort er á vákortalista (gátlista), sem félagið hefur gefið út.
• Þegar mynd á korti, undirskrift eða önnur atriði bera með sér, að sá sem framvísar korti er annar en korthafi.
4.7. Seljanda ber tafarlaust að tilkynna félaginu um að kort hafi verið tekið af korthafa. Sama á við ef ekki hefur tekist að taka kort af þeim sem framvísar því, hafi tilefni verið til, eða réttmætur grunur um að svo hafi verið. Hafi komið skilaboð á skjá um að taka kort en kort ekki verið tekið skal hafa samband við félagið samstundis og óski félagið þess skal senda félaginu viðkomandi posaútprentun.
4.8. Sá starfsmaður seljanda sem tekur kort af korthafa við ofangreindar aðstæður á rétt til verðlauna úr hendi félagsins samkvæmt gjaldskrá.
4.9. Taki seljandi ekki kort við ofangreindar aðstæður eða hafi ekki samband við félagið telst hann hafa fyrirgert rétti sínum til að fá greiddar úttektir, sem gerðar eru hjá honum með kortinu, þá og síðar.
4.10. Ef heimild er synjað er seljanda óheimilt að reyna aftur að afla heimildar. Ef heimild fæst samt sem áður, þegar seljandi leitar aftur heimildar, getur félagið hafnað að greiða úttektir með kortinu. Ef félagið greiðir úttekt, er það gert með þeim ótvíræða fyrirvara, að heimilt sé að endurkrefja seljanda um fjárhæðina, ef korthafi innir ekki greiðslu af hendi til útgefanda kortsins.
5.0 Viðskiptakjör korthafa
5.1. Seljandi skal veita handhafa gilds korts sambærileg eða betri viðskiptakjör en þeim sem greiða með öðrum greiðslumiðlum.5.2. Ákveði seljandi að leggja álag á endurgjald fyrir selda vöru eða þjónustu vegna greiðslu með korti, skal koma skýrt fram á fyrstu stigum viðskipta að lagt sé á álag og hvert það sé. Álag skal á hverjum tíma endurspegla kostnað af viðskiptunum og leggi seljandi álag á greiðslur með greiðslukortum skal hann einnig leggja álag á önnur viðskipti í samræmi við kostnað viðkomandi greiðslumiðils.
5.3. Seljanda er óheimilt að veita korthafa MasterCard, American Express, Diners Club,JCB eða VISA kreditkorts lakari kjör en viðskiptavinum sem framvísa öðrum kreditkortum. Seljanda er þó heimilt að taka þátt í sérstökum vildarkerfum og veita afslátt eða önnur sérkjör á grundvelli sammerktra (co-branded) korta.
5.4. Sé veittur sérstakur staðgreiðsluafsláttur skulu þeir sem greiða með Maestro og VISA Electron debetkortum njóta hans.
5.6. Seljendur er gert hafa sértækan samning við félagið geta boðið erlendum korthöfum úttekir í gjaldmiðli heimalands korthafa. Þjónustan nefnist “Gjaldmiðlaskipti á sölustað” (GáS). Fyrir slíka þjónustu greiðir korthafi gengisálag skv. gjaldskrá félagsins. Þiggi korthafi slíkt boð fellur niður álag á erlenda færslu, skv. gjaldskrá auk þess sem seljandi getur fengið þóknun skv. sérstökum samningi við félagið. Seljanda er skylt að kynna korthafa slíka þjónustu áður en fjárhæð er snúið yfir í aðra mynt og fá samþykki korthafa. Félagið birtir þær reglur sem um þjónustuna gilda á hverjum tíma á www.borgun.is. Félagið mun láta seljendum í té “posa” á leigu samkvæmt þeirra óskum í þessu skyni en seljendur með sérstök afgreiðslukerfi þurfa að láta aðlaga kerfi sín þessari þjónustu hyggist þeir veita hana.
6.0 Kreditfærslur / bakfærslur
6.1. Seljanda er ekki heimilt að endurgreiða þeim sem greitt hefur með kreditkorti í reiðufé, þegar hann skilar vörum, þiggur ekki þjónustu, eða viðskipti ganga með öðrum hætti til baka. Þegar um slíkt er að ræða skal endurgreiðslan fara fram með kreditnótu, sem framvísa ber til félagsins á sama hátt og úttektarseðli. Félagið mun færa kreditnótuna til eignar á reikningi korthafa, og draga frá greiðslu til seljanda, eða með rafrænni kreditfærslu.6.2. Seljanda er skylt að endurgreiða þeim sem greitt hefur með Maestro eða VISA Electron debetkorti í reiðufé, þegar hann skilar vörum, þiggur ekki þjónustu, eða viðskipti ganga með öðrum hætti til baka, enda eigi korthafi rétt til að rifta samningi samkvæmt almennum reglum.
6.3. Heimili seljandi að viðskipti gangi til baka, án þess að honum sé það skylt, getur seljandi bundið slíkt við úttekt korthafa á vöru eða þjónustu í rekstri sínum, innan nánar tiltekinna tímamarka.
7.0 Kynning á viðtöku korta
7.1. Seljandi skal jafnan og á áberandi hátt hafa til sýnis einkennismerki þeirra korta er hann tekur við. Merkin eru látin seljanda í té án endurgjalds. Seljanda er heimilt að auglýsa þátttöku sína í MasterCard, Maestro, American Express, Diners Club, JCB og VISA þjónustunni, og tilgreina nöfnin MasterCard, Maestro, American Express, Diners Club, JCB, VISA og VISA Electron í ræðu sem riti.7.2. Heimild þessi felur þó með engum hætti í sér framsal á nokkrum þeim rétti sem félagið og erlendir samstarfsaðilar eiga til ofangreindra nafna og merkja tengdum þeim eða viðskiptavildar.
8.0 Úttektir og úttektarseðlar
8.1 Nota skal rafræna kortalesara (posa) sé þess nokkur kostur. Kortalesarar sem notaðir eru til að skrá úttektir korthafa með rafrænum hætti, þurfa að vera samþykktir af Fjölgreiðslumiðlun hf. eða öðrum þeim er félagið tilnefnir. Tækin lúta einnig sérstökum meðferðarreglum. Krafan um samþykki nær jafnt til sjálfstæðra kortalesara og þeirra sem kunna að vera hluti sjóðsvélar eða tölvukerfis seljanda. Seljandi skal einungis kaupa og leigja búnað eða þiggja tækniþjónustu af aðilum sem hafa gilda samninga við félagið um gerð og vottun hugbúnaðar vegna færsluviðtöku. Allur kostnaður af rafrænni skráningu er á ábyrgð seljanda.8.2 Séu rafrænir kortalesarar ekki fyrir hendi eða óvirkir eða samband næst ekki er heimilt að gera handvirka skráningu. Óheimilt er að verða við beiðni korthafa um handvirka færslu ef rafræn skráning er möguleg. Ef úttektir með kreditkorti eru skráðar handvirkt ber að skrá hverja úttekt með korti á þar til gerða úttektarseðla. Nota má hvaða kortþrykkivél sem er, enda sé hún merkt seljanda, og slík vél skal notuð fremur en að handskrifa á seðilinn hinar upphleyptu upplýsingar.
8.3 Ef úttektarseðill er handskrifaður, án þess að þrykkivél sé notuð, skal þess gætt að korthafi sýni vegabréf, ökuskírteini eða önnur fullgild persónuskilríki með mynd og að númer þess sé ritað á úttektarseðilinn.
8.4 Skilyrðum um formlega viðurkenningu korthafa á úttekt sinni er fullnægt þegar korthafi slær inn PIN númer í þar til gerðan búnað eða undirritar úttektarseðil. Þegar úttekt er handskráð skal afla heimildar símleiðis og skrá skal heimildarnúmer í þar til gerðan reit á úttektarseðli.
8.5 Engar breytingar má gera á úttektarseðli eftir að korthafi hefur undirritað hann.
8.6 Óheimilt er að dagsetja úttektarseðla fram í tímann.
8.7 Allar úttektir sem seljandi gerir, án þess að korthafi staðfesti úttekt með innslætti PIN númers eða undirriti úttektarseðil , svo sem í símtölum, með tölvusamskiptum eða með því að seljandi afhendir vöru eða þjónustu án þess að krefjast formlegrar staðfestingar sbr. 8.4. eru alfarið á áhættu seljanda. Félagið getur hafnað að greiða slíkar úttektir ef korthafi mótmælir að hann hafi heimilað þær. Ef félagið greiðir slíka úttekt, er það gert með þeim ótvíræða fyrirvara, að heimilt sé að endurkrefja seljanda um fjárhæðina, ef korthafi innir ekki greiðslu af hendi til útgefanda kortsins. Hafi slík úttekt verið millifærð á reikning seljanda vegna úttektar með debetkorti getur félagið, eða útgefandi debetkortsins, krafist endurgreiðslu fjárins, eða dregið hana frá síðara uppgjöri til seljanda.
8.8 Seljandi skal tryggja, að þegar starfsmaður hans notar eigið kort í viðskiptum sínum við seljanda, sinni annar starfsmaður skráningu úttektarinnar.
8.9 Seljandi skal vikulega senda félaginu, banka eða sparisjóði það eintak úttektarseðils sem merkt er færsluhirði vegna úttekta, sem eru skráðar handvirkt.
8.10 Sé úttektarseðli ekki framvísað innan 10 virkra daga frá því að viðskipti áttu sér stað, getur félagið hafnað að greiða seljanda þá úttekt, fyrr en greiðsla hefur borist frá korthafa.
8.11 Föst úttektartímabil eru tvö. Annars vegar frá 18. degi mánaðar til 17. dags mánaðar þar á eftir, hins vegar frá fyrsta til síðasta dags mánaðar. Félagið býður einnig breytileg úttektartímabil. Á breytilegum tímabilum félagsins er vikið frá hinu fyrra úttektartímabili, skv. auglýstri töflu. Seljendur geta óskað eftir breytilegu tímabili, en þó aldrei til skemmri tíma en árs í senn.
8.12 Úttektarseðla síðustu daga hvers tímabils skal senda félaginu, banka eða sparisjóði strax fyrsta virkan dag næsta úttektartímabils.
8.13 Upplýsingar um úttektir sem skráðar eru með rafrænum hætti skal senda daglega úr afgreiðslutæki það er posa eða kassakerfi inn í greiðslumiðlunarkerfi félagsins. Séu upplýsingar um úttekt ekki sendar innan þriggja bankadaga frá því að viðskipti áttu sér stað, getur félagið hafnað að greiða seljanda þá úttekt, fyrr en greiðsla hefur borist frá korthafa, eða næg innstæða verði á kortareikningi hans, hafi verið greitt með debetkorti.
8.14 Láti seljandi hjá líða að skila upplýsingum til félagsins innan tilskilins frests ber honum að greiða álag á þóknun og/eða þóknun vegna aukins kostnaðar félagsins af innheimtu úttektarinnar, skv. gjaldskrá.
8.15 Félaginu er heimilt að neita að taka við upplýsingum um færslur sem eru eldri en tólf mánaða.
8.16 Félagið skal hvenær sem er, í fjögur ár frá skráningu úttektar, eiga rétt til að seljandi framvísi frumriti úttektarseðils, vegna úttekta sem eru skráðar með rafrænum hætti. Framvísi seljandi ekki undirrituðum úttektarseðli, innan 10 virkra daga frá því krafa er gerð, er félaginu heimilt að endurkrefja seljanda um fjárhæðina, eða hafna greiðslu hennar.
9.0 Úttektarmörk
9.1 Rafræn afgreiðslutæki leita heimildar samkvæmt reglum félagsins um úttektarmörk og innhringitíðni. Leita skal heimildar símleiðis fyrir öllum úttektum sem ekki eru gerðar í rafræn afgreiðslutæki. Félaginu er heimilt að endurskoða þessar reglur um innhringingar, og fellst seljandi á að samþykkja slíkar breytingar.9.2 Seljandi samþykkir að virða úttektarmörk og aldrei má gefa út fleiri en einn úttektarseðil eða framkvæma nema eina rafræna færslu fyrir hver einstök viðskipti. Brot á framanrituðu heimilar félaginu að hafna greiðslu allra úttekta með viðkomandi korti hjá seljanda. Ef félagið greiðir slíka úttekt, er það gert með þeim ótvíræða fyrirvara, að heimilt sé að endurkrefja seljanda um fjárhæðina, ef korthafi innir ekki greiðslu af hendi til útgefanda kortsins.
9.3 Ef endurgjald fyrir keypta vöru eða þjónustu fer yfir úttektarmörk kreditkorts er unnt að óska eftir heimild símleiðis frá félaginu um að fara megi yfir mörkin. Þegar slík heimild er veitt, er gefið upp sérstakt heimildarnúmer, sem slegið er inn í tæki sem sér um rafræna skráningu, eða skal fært á úttektarseðil á tilætlaðan stað.
9.4 Félagið getur hafnað að greiða heildarfjárhæð úttektar, ef farið er yfir mörkin án heimildar. Ef félagið greiðir slíka úttekt, er það gert með þeim ótvíræða fyrirvara, að heimilt sé að endurkrefja seljanda um fjárhæðina, ef korthafi innir ekki greiðslu af hendi til útgefanda kortsins.
10.0 Ábyrgð félagsins á úttektum - aðgangsréttur seljanda
10.1 Til að tryggja frekara öryggi í kortaviðskiptum hafa MasterCard Worldwide og VISA International gert það að skilyrði að afgreiðslutæki geti lesið örgjörva. Móttaki seljandi kort sem búið er örgjörva, og örgjörvi er ekki lesin og úttekt staðfest með PIN innslætti getur félagið hafnað að greiða slíka úttekt ef korthafi mótmælir að hann hafi heimilað hana. Ef félagið greiðir slíka úttekt, er það gert með þeim ótvíræða fyrirvara, að heimilt sé að endurkrefja seljanda um fjárhæðina ef hann hefur rétt til að óska eftir bakfærslu.Þegar greitt er með korti sem ekki er búið örgjörva ábyrgist félagið greiðslu úttekta með gildum kortum enda hafi korthafi sjálfur framvísað kortinu og undirritað eigin hendi úttektarseðil, og seljandi hafi skráð viðskiptin eins og vera ber, gætt varúðarskyldu sinnar og efnt skyldur sínar í samræmi við samning aðila og skilmála þessa. Úttektir sem gerðar eru án þess að korti sé framvísað og/eða úttekt staðfest með innslætti PIN númers eða undirritun úttektarseðils eru á ábyrgð seljanda. Borgun greiðir slíkar úttektir með þeim fyrirvara að heimilt sé að endurkrefja seljanda um fjárhæðina ef korthafi mótmælir úttekt.
Félagið getur endurkrafið seljanda um úttekt ef sýnt er að ekki var farið að skilmálum.
10.2 Seljandi skal eingöngu krefja félagið um greiðslur vegna úttekta sem stofnað er til með kortum í samræmi við gildandi reglur á hverjum tíma, en aldrei korthafa sjálfan.
10.3 Hafni félagið greiðsluskyldu sinni skal félagið framselja þann rétt sem það kann að eiga á korthafann til seljanda, sem þá getur beint kröfum sínum að korthafanum.
11.0 Skráning úttekta
11.1 Allar úttektir með debetkortum skulu skráðar með rafrænum hætti.11.2 Allar úttektir með kreditkortum skulu annað hvort skráðar með rafrænum hætti eða skráðar handvirkt á sérstaka úttektarseðla, sem félagið lætur seljanda í té. Rafræn skráning skal viðhöfð þegar nokkur kostur er.
11.3. Þegar seljandi tekur við sem greiðslu fyrir vöru og/eða þjónustu með innkaupakortum, fyrirtækjakortum eða öðrum þeim kortum sem bjóða upp á mögulega innsendingu viðbótarupplýsinga (ítarupplýsinga) um færslu, skal hann gæta þess að slíkar upplýsingar fylgi færslu.
Félagið áskilur sér rétt til að leggja sérstakt gjald og/eða álag á þóknun vegna þeirra færslna innkaupa- og fyrirtækjakorta sem ekki er farið með í samræmi við 1. mgr. 11.3. og skal þá um það fjallað í almennri gjaldskrá félagsins.
11.4 Félagið áskilur sér rétt til að leggja sérstakt gjald og/eða álag á þóknun, þegar skrá þarf upplýsingar handvirkt, þar sem koma hefði mátt við rafrænni skráningu.
11.5 Gerist seljandi brotlegur við skilmála þessa, birt fyrirmæli eða sérskilmála félagsins með þeim afleiðingum að alþjóðlegu kortasamsteypurnar leggja sektir á félagið, er félaginu heimilt að draga fjárhæð sektar frá uppgjöri við seljanda.
11.6 Félagið og/eða umboðsaðilar láta seljanda í té þrykkivél og rafeindabúnað til notkunar við skráningu úttekta með kortum, gegn greiðslu kaup- eða leigugjalds.
11.7 Óheimilt er að nota annan búnað nema samkvæmt nánara skriflegu samkomulagi við félagið og/eða samstarfsaðila þess.
11.8 Félaginu er heimilt að fela öðrum að annast móttöku rafrænt skráðra upplýsinga um viðskipti með kortum, sem og aðra fyrirfram skilgreinda þætti samskipta við seljanda tengda áðurnefndri færslusöfnun.
11.9 Félagið ber eftir sem áður fulla ábyrgð á efndum samninga sinna gagnvart seljendum.
12.0 Lánavefur
12.1 Félagið veitir neytendalán í gegnum lánavef á www.lanavefur.is. Seljendur geta sótt um að nýta sér þjónustu lánavefs. Uppfylli seljandi skilyrði félagsins getur hann boðið viðskiptavinum sínum að greiða fyrir vöru og/eða þjónustu með neytendaláni sem ýmist er innheimt í gegnum kreditkort viðskiptavinar eða með greiðsluseðli, Seljandi greiðir gjöld vegna aðgengis að lánavef í samræmi við gjaldskrá á hverjum tíma12.2. Fyrir öllum lánum sem gerð eru í gegnum lánavef er leitað heimildar með rafrænum hætti. Lántaki skal undirrita lánasamning vegna viðskiptanna og skal fylgja greiðsluáætlun sbr. 6. gr. laga nr. 121/1994 um neytendalán. Seljandi getur útbúið skjöl þessi á lánavef eftir að fengin hefur verið heimild fyrir láni og lánanúmeri hefur verið úthlutað rafrænt.
12.3. Það er á ábyrgð seljanda að geyma lánsskjöl með sama hætti og aðra úttektarseðla, sbr. 8.16. Framvísi seljandi ekki undirrituðum lánssamningi innan viku frá því krafa um slíkt er gerð, er Borgun hf. heimilt að endurkrefja seljanda um fjárhæð lánssamnings, eða hafna greiðslu hans. Borgun hf. mun endurkrefja seljanda um fjárhæð láns, ef í ljós kemur að um falsaða undirritun á lánssamningi er að ræða, vara eða þjónusta er ekki afhent eða ef seljandi eða starfmaður hans hefur ekki fylgt skilmálum þessum.
12.4 Borgun hf. mun greiða seljanda andvirði lánssamnings eigi síðar en á 3ja virka degi frá því að samningur er gerður og er þá andvirði hins selda lagt inn á uppgjörsreikning seljanda. Viðskiptayfirlit vegna keyptra lánasamninga er sent í pósti til seljanda.
13.0 Seljandavefur seljanda
13.1 Seljandi getur nálgast upplýsingar um þjónustusamning sinn á Seljandavef Borgunar. Sækja þarf sérstaklega um aðgengi að Seljandavefnum og skuldbindur seljandi sig til að fara í einu og öllu að skilmálum Borgunar um Seljandavef sem birtir eru birtir á umsóknarsíðu Seljandavefs.
14.0 Uppgjörstímabil vegna kreditkorta
14.1 Uppgjörstímabil fylgir því úttektartímabili er seljandi hefur valið sér, sbr. 8.11., svo fremi að þessir skilmálar hafi verið haldnir og eigi hafi verið um annað samið skal félagið inna af hendi greiðslu til seljanda eigi síðar en 2. dag næsta mánaðar eftir lok úttektartímabils.14.2 Beri greiðsludag upp á helgidag eða almennan frídag færist greiðsludagur á næsta virkan dag á eftir. Seljendur geta sótt um aðra greiðsludaga og reiknast þá álag á þóknun seljanda samkvæmt gjaldskrá, nema seljandi semji um þóknun að nýju.
15.0 Uppgjör vegna debetkorta
15.1 Andvirði viðskipta með íslenskum debetkortum er greitt inn á bankareikning seljanda, sem tilgreindur er í þjónustusamningi, í lok sama dags og færslur berast félaginu, enda berist þær fyrir þann tíma dags sem Reiknistofa bankanna og/eða útgefendur debetkorta ákveða á hverjum tíma, enda sé um almennan opnunardag banka og sparisjóða að ræða, annars næsta bankadag.15.2 Uppgjör viðskipta vegna erlendra debetkorta er með sama hætti og uppgjör kreditkorta, sbr. 13.1.
15.3 Félaginu og útgefendum debetkorta fyrir þess hönd, er heimilt að skuldfæra bankareikning seljanda sem skráður er á þjónustusamning hans fyrir endurgreiðslum, þóknun og kostnaði, eftir uppgjöri, mánaðarlega eða oftar eða skuldajafna á móti andvirði viðskipta með debetkortum.
16.0 Þóknun og uppgjör milli félagsins og seljanda
16.1 Félagið mun draga frá heildarfjárhæð hvers uppgjörstímabils áfallinn kostnað, leiðréttingar vegna fyrri uppgjöra, gjöld samkvæmt gjaldskrá, leigugjöld vegna afgreiðslutækja er félagið leigir seljanda og ábyrgðar- og þjónustugjald vegna kreditkortaviðskipta og viðskipta með erlend debetkort.16.2 Einnig er félaginu heimilt að skuldfæra bankareikning seljanda vegna þessara liða.
16.3 Þóknun og kostnaður vegna innlendra debetkortaviðskipta skuldfærist á reikning seljanda í samræmi við framansagt.
16.4 Í þjónustusamningi er kveðið á um hvert hlutfallslegt ábyrgðar- og þjónustugjald seljanda vegna MasterCard, VISA, Maestro og VISA Electron korta er á þeim tíma sem samningurinn er gerður og er félaginu er heimilt að endurskoða kjör seljanda í samræmi við magn og eðli viðskipta. Endurskoðun skal styðjast við birta gjaldskrá félagsins á hverjum tíma. Ábyrgðar- og þjónustugjald vegna American Express, JCB, Diners Club og VISA korta er samkvæmt gjaldskrá eða samningi á hverjum tíma. Ábyrgðar- og þjónustugjald vegna viðtöku erlendra debetkorta er hið sama og ábyrgðar- og þjónustugjald vegna íslenskra kreditkorta. Félaginu er heimilt að birta sérstakt breytilegt lágmark og/eða hámark ábyrgðar- og þjónustugjalda í almennri gjaldskrá.
16.5 Seljandi greiðir auk umsamins ábyrgðar- og þjónustugjalds, gjöld samkvæmt gjaldskrá félagsins hverju sinni. Breytingar á gjaldskrá skulu vera tilkynntar á vefsíðu félagsins a.m.k. einni viku áður en þær taka gildi. Gjaldskrá má á hverjum tíma nálgast á heimasíðu félagsins www.borgun.is og í afgreiðslu Ármúla 30, Reykjavík.
16.6 Álag á ábyrgðar- og þjónustugjald vegna færslna með erlendum kortum takmarkast við alþjóðleg millikortagjöld sem félagið greiðir erlendum samstarfsaðilum sínum vegna notkunar korta útgefnum af þeim. Álag á hverjum tíma er auglýst í gjaldskrá félagsins.
16.7 Félaginu er ætíð heimilt að draga sérhverja réttmæta kröfu sína á seljanda frá uppgjöri sínu til hans, hvort sem krafan er vegna uppgjörs eða bakfærsla, eða á rót sína að rekja í öðrum viðskiptum aðilanna. Fjárnám kröfuhafa seljanda í inneign hans hjá félaginu, gjaldþrotaskipti á búi seljanda, eða framsal seljanda á kröfum sínum á félagið, takmarkar þennan rétt með engu móti, nema félagið hafi sérstaklega fallið frá skuldajafnaðarheimild sinni, eða samþykkt framsalið til aðila sem félagið hefur sérstaklega samþykkt sem framsals- eða veðhafa.
16.8 Hafi seljandi verið lýstur gjaldþrota er félaginu heimilt að halda eftir greiðslum vegna mánaðarlegs uppgjörs til tryggingar væntanlegum endurkröfum á hendur seljanda. Við beitingu þessa ákvæðis mun félagið gæta þess að halda ekki eftir meira fé en því sem nauðsynlegt er til slíkrar tryggingar sem og að fé verði ekki haldið í lengri tíma en nauðsyn er.
17.0 Framsal réttar seljanda - ágreiningur seljanda og korthafa
17.1 Seljanda er óheimilt að framselja rétt sem viðskipti við korthafa skapa honum, nema til aðila sem uppfylla almenn skilyrði félagsins til framsalshafa, enda hafi viðkomandi aðili samning við félagið um ráðstöfun greiðslna til sín.17.2 Almenn skilyrði félagsins eru að framsalshafi sé lögpersóna sem starfar á sviði fjármálaumsýslu, hafi til þess tilskilin opinber leyfi og sé háður opinberu eftirliti.
17.3 Þrátt fyrir framsal réttar seljanda skulu öll réttindi korthafa vegna viðskiptanna haldast, svo sem vegna galla og afhendingardráttar.
17.4 Framsal seljanda til annarra en þeirra sem uppfylla almenn skilyrði félagsins til framsals eru með öllu óskuldbindandi gagnvart félaginu og skerða m.a. ekki rétt félagsins til skuldajöfnunar.
17.5 Félagið mun ekki, hvernig sem á stendur, taka að sér milligöngu, eða takast á hendur ábyrgð, vegna nokkurs konar ágreinings á milli seljanda og korthafa, vegna vöru eða þjónustu sem greidd hefur verið með korti.
17.6 Félagið áskilur sér rétt til að draga frá uppgjöri til seljanda fjárhæð, sem ágreiningur er um, ef úttekt er ekki greidd til félagsins, eða henni hefur verið mótmælt af korthafa.
18.0 Gildistími og lok samnings
18.1 Skilmálar þessir skulu gilda frá og með þeim tíma sem þjónustusamningurinn tekur gildi, og þar til hann er úr gildi fallinn. Þann tíma er seljanda skylt að veita greiðslum með kortum viðtöku í samræmi við skilmála þessa. Taki seljandi sem ekki hefur undirritað þjónustusamning, við debet- eða kreditkortum sem greiðslu fyrir vöru og þjónustu telst hann hafa samþykkt skilmála þessa.18.2 Þjónustusamningurinn er ótímabundinn, en uppsegjanlegur af beggja hálfu, með tveggja mánaða fyrirvara, miðað við mánaðamót. Borgun er ávallt heimilt að segja upp og loka aðgangi að lánavef sbr. kafli 12 í skilmálum þessum án fyrirvara. Segi seljandi upp samningi er gert ráð fyrir að uppsögn eigi við um móttöku allra tegunda korta nema annað sé sérstaklega tekið fram í uppsögn. Telji MasterCard International, Maestro International, American Express, Diners Club,JCB eða VISA International það ekki í þeirra þágu að viðhalda samningi þessum, er hægt að segja upp þeim hluta samnings er fjallar um móttöku viðkomandi vörumerkis, án fyrirvara.
18.3 Allar samningsskyldur aðila haldast á uppsagnarfrestinum.
18.4 Þjónustusamningurinn er ekki framseljanlegur og fellur úr gildi ef rekstri seljanda er hætt.
18.5 Við eigendaskipti rekstrar, þ.e. þegar nýr aðili eða lögpersóna tekur við rekstri, ber fyrri eiganda að skila félaginu og/eða umboðsaðilum vélum og búnaði.
18.6 Nýr rekstraraðili sbr. gr. 17.5 þarf að gera nýjan samning við félagið til að öðlast rétt til að taka við greiðslum með MasterCard, VISA, JCB, Diners Club eða Amercian Express kreditkortum og Maestro og VISA Electron debetkortum.
18.7 Seljandi skal tilkynna félaginu um breytingu á forsvarsmanni og einnig ef breyting verður á eignarhaldi á verulegum hluta seljanda.
18.8 Hafi nýr forsvarsmaður eða nýir eigendur áður vanefnt þjónustusamning við félagið, þannig að varði riftun, er félaginu heimil fyrirvaralaus riftun.
18.9 Seljanda er óheimilt að taka við greiðslum vegna annarra viðskipta en tilkynnt hafa verið félaginu að seljandi stundi. Seljandi skal tilkynna félaginu um hvers konar breytingar á eðli starfsemi sinnar, frá því sem greint er í umsókn.
18.10 Breytingar á eðli starfsemi seljanda veita félaginu rétt til fyrirvaralausra breytinga á samningsskilmálum og verulegar breytingar heimila félaginu riftun þjónustusamnings.
18.11 Vanefni annar hvor aðilinn skyldur sínar er hinum heimilt að rifta þjónustusamningnum, að undangenginni áskorun um úrbætur, með 7 daga fresti til úrbóta.
18.12 Misnoti seljandi aðstöðu sína freklega gagnvart korthafa, svo sem með svikum, misneytingu eða óheimilum úttektum, er félaginu heimilt að rifta samningnum fyrirvaralaust, án undangenginnar áskorunar um úrbætur.
19.0 Breytingar á skilmálum
19.1 Félagið áskilur sér rétt til breytinga á skilmálum þessum og skal breyting tilkynnt seljanda með sannanlegum hætti, svo sem með kynningarefni sem fylgir mánaðarlegu uppgjörsyfirliti til hans, áður en breytt ákvæði skilmálanna taka gildi.19.2 Breytingin tekur gildi hafi ekki komið fram skrifleg mótmæli af hálfu seljanda, innan tveggja vikna frá dagsetningu tilkynningar. Komi fram mótmæli skal reynt að ná sáttum með aðilum en takist það ekki telst þjónustusamningurinn þar með fallinn úr gildi.
20.0 Tjón af völdum utanaðkomandi aðstæðna
20.1 Félagið undanskilur sig ábyrgð á hvers konar tjóni seljanda sem rekja má til rafmagnsleysis, rafmagnstruflana, truflana eða bilana í símkerfum, öðrum boðleiðum eða samgöngum, truflana eða bilana í tölvukerfum, lagaboða, stjórnvaldsaðgerða, styrjalda, hryðjuverka, verkfalla, verkbanna, náttúruhamfara eða annarra álíka atvika.
21.0 Varnarþing
21.1 Rísi mál út af samningi þessum skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar þessir gilda frá 18. mars 2009
Reykjavík, 12. febrúar 2009.