Þjónustuvefir

Borgun rekur þrjá þjónustuvefi til þess að auðvelda viðskiptavinum sínum yfirsýn.

Seljandavefur
Á þjónustuvef seljenda geta forsvarsmenn fyrirtækja skoðað uppgjör, innsenda bunka og einstakar kortafærslur á netinu. Einnig er hægt að fylgjast með uppsöfnun í næsta uppgjör frá degi til dags og greina veltuna eftir tegundum korta. Þá er hægt að skoða og vinna með færslur í allt að 2 ár aftur í tímann.

Lánavefur
Á Lánavef Borgunar geta seljendur afgreitt Staðgreiðslulán vegna MasterCard og Visa kreditkorta. Af Lánavefnum sendist samningurinn rafrænt til Borgunar.

Færsluvefur
Færsluvefur Borgunar er frábært tæki til að auka hagræði í bókhaldi, innkaupum og samþykktarferli viðskiptavina. Færsluvefurinn birtir allar færslur sem gerðar eru á MasterCard og American Express fyrirtækjakort, innlend sérkort og reikningsviðskipti. Þar er mögulegt að skoða og gera á færslunum allar algengustu bókhaldsaðgerðir, t.d. að skipta þeim upp, skrá á bókhaldslykla, skipta á deildir, samþykkja og margt fleira.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi