Einungis fyrir erlend MasterCard, VISA og American Express kort og erlend debetkort. Hentar seljendum sem gefa upp verð í evrum og eru með erlenda viðskiptavini. Seljandi slær inn upphæð í evrum í posann og korthafinn er rukkaður um nákvæmlega sömu upphæð án gengisáhættu. Uppgjör við seljanda geta síðan ýmist verið í evrum eða íslenskum krónum.

Þjónustugjöld eru þau sömu og ef færslur væru í íslenskum krónum. Fyrir hvert uppgjör í evrum er rukkað SWIFT gjald að upphæð 6 evrur.

Hægt er að fá Evru posa sem símalínu posa, IP posa og GSM posa sem geta tekið evrur. Athugið að posinn verður stilltur til að taka einungis evrur og er ekki hægt að nota hann til að senda færslur í íslenskum krónum. Flest fyrirtæki þyrftu að hafa tvo posa, einn fyrir íslenskar krónur og annan fyrir evrur.

Auk evruposa fyrir MasterCard , VISA og American Express kort getur Borgun boðið upp á dollaraposa fyrir VISA og MasterCard. Við munum síðar bjóða upp á posa í fleiri myntum.

Borgun getur boðið upp á seljendasamninga í fleiri myntum sem hægt er að nota t.d. fyrir Vefgreiðslur og símgreiðslur. Einnig fæst DCC þjónusta í flestar gerðir posa.

Við vekjum athygli á því að notkun íslenskra korta í þessum posum er óheimil samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands.

Ódýrastir í posum!

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi