Greiðsluleiðir
Fyrir utan hinar hefðbundnu eingreiðslur í posum og kassakerfum bjóðast aðrar greiðsluleiðir.
Boðgreiðslur
Tilvalin leið til að innheimta mánaðarlegar greiðslur af MasterCard, VISA og American Express greiðslukortum. Mikið notað vegna áskriftar, t.d. hitareikninga, rafmagnsreikninga, fasteignagjalda og leikskólagjalda.
Viðskiptavinur sendir boðgreiðslur í gegnum boðgreiðsluforrit Borgunar. Nánari upplýsingar um Boðgreiðslur eru hér.
Staðgreiðslulán
MasterCard og VISA staðgreiðslulán gera fyrirtækjum kleift að bjóða korthöfum að dreifa greiðslum vegna stærri innkaupa á allt að 48 mánuði. Lánaumsóknir eru afgreiddar á Lánavef Borgunar samstundis. Uppgjör Borgunar til fyrirtækis á staðgreiðslulánum fer fram næsta virka dag eftir að kaup fóru fram. Hægt er að fá nánari upplýsingar um Staðgreiðslulán hér.
Á Lánavef Borgunar er auðvelt að skoða viðskipti aftur í tímann. Hætti kaupandi við kaupin er hægt að ógilda lánið samdægurs. Líði lengri tími þarf að hafa samband við Borgun til að fá niðurfellingu.
Léttgreiðslur
Þægileg leið fyrir fyrirtæki til að bjóða vaxtalaus lán í allt að 6 mánuði. Borgun ábyrgist fyrstu greiðslu, að því tilskyldu að heimild hafi fengist fyrir henni.
Borgun sér um að skuldfæra korthafa og leggja inn á reikning fyrirtækja. Nánari upplýsingar um Léttgreiðslur eru hér
Framlag
Þægileg leið fyrir minni félög og samtök til að innheimta félagsgjöld og styrki á MasterCard, VISA og American Express greiðslukort.
Korthafar geta takmarkað framlag sitt við ákveðna fjárhæð á þeim tíma sem við á. Nánari upplýsingar um Framlag eru hér.